Já eða nei við Icesave ?

Það eru örugglega milljón ástæður til þess að segja nei ? Hvernig væri að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort krabbamein, elli og sjúkdómar verða boðnir velkomnir á Íslandi ? Sorry, ég verð að vera fúli á móti því að ég ætla að vandlega hugsuðu máli að segja já við samningum um málið. Ef maður er í vafa með eitthvað mál þá finnst mér oft mjög gagnlegt að setja mig í spor þeirra sem eru hinumegin við borðið. Hvernig litir þú á málið ef þú værir Breti eða Hollendingur ? Ósköp einfalt ekki satt ? Af hverju ættum við líka að tryggja innistæður íslendinga að fullu en neita að greiða jafnvel lágmarksfjárhæð ef innistæðueigandinn er útlendingur ? Stenst enga skoðun ? Skulum heldur ekki ímynda okkur að Bretar séu að græða á þessu eins og sumir halda blákalt fram ? Við borgum lágmarks fjárhæð og þeir afganginn, lítill gróði af því fyrir þá ? Jæja ætla ekki að láta rigna á skrúðgönguna en þetta er bara ekki mál sem hægt er að kjósa í burtu og einstaklega ábyrgðarlaust og heimskulegt af forsetanum að bjóða uppá það ? Þetta er bara mín skoðun..............Nei auðvitað átti aldrei að tryggja íslenskar innistæður takmarkalaust en þegar Geir Haarde sagði Guð blessi Ísland (við erum búin að steypa því á hausinn ?) þá vorum við þegar búin að ábyrgjast 750+ milljarða án þess að vera spurð, án þess að fá að greiða atkvæði og án þess að það væri nokkur hámarksfjárhæð á ábyrgðinni. Svo ætlast sumir til þess að við steypum framtíð þjóðarinnar í óvissu fyrir skitna 23 milljarða sem standa útaf í Icesave deilunni núna ??? Útaf hneykslan og sjokki ? Krónan kemur bara til með að styrkjast og ég skil bara ekki hvernig fólki, skynsömu fólki sem ég ber virðingu fyrir dettur í hug að segja nei við nýjasta samningnum ? Hroki, ábyrgðarleysi og stolt eru hugtök sem við skulum skilja eftir fyrir utan kjörklefana næsta laugardag........Prufum að setja okkur í annara þjóða spor ?

Landsbankinn var líka einkafyrirtæki þegar íslenskar innistæður voru tryggðar ?

þótt við ynnum Icesave málið fyrir alþjóðadómstól myndum við þá ekki
tapa meira á því þegar upp yrði staðið ?  Hvers virði er velvild
nágrannanna ? Þeir eru þegar að greiða nóg fyrir atkvæðin sem við greiddum frjálshyggjunni og regluleysinu fyrir hrunið ?
mbl.is Dómstólaleið fylgir áhætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave III----Hugsið ykkur nú um ?

Mín skoðun: Mig langar ekkert að borga IceSave en nú er búið að bjóða okkur ágætis díl að mínu mati sem samningsaðilar gætu gengið frá með sæmilegri reisn. Mín skoðun er að best væri að samþykkja þetta og íhuga alvarlega hvað varð til þess... að við þurftum þess ? Fiskveiðiheimildirnar voru gefnar ? Ríkisbankarnir okkar voru gefnir óreiðumönnum. Reglur um fjármál og fjármagnsflutninga voru lagðar niður ?!? Ríkið (við ?) ábyrgðist svo við hrunið allar íslenskar innistæður að fullu, 750 milljarða ! Framkvæmt af frjálshyggjustjórninni sem við kusum í 20 ár ???
Svo er fólk alveg að missa sig yfir 40 milljarða Icesave samningi ? Landsbankinn var líka einkafyrirtæki þegar við ábyrgðumst íslenskar innistæður ? Sækjum bara eignir þeirra sem sekir eru um brot, uppí skuldina ? Nóg voru þeir að græða ? Með fullri virðingu óska ég að fá að vera á annari skoðun um ÞENNAN samning burtséð frá öðru og íhuga vandlega atkvæði mitt í hverjum kosningum ?

Vinsamlegast hættið skotgrafahernaði ?

Þegar ríkisstjórnin loksins óskar eftir hjálp og tillögum stjórnarandstöðunnar á fundi allra flokka þá kvartar síðan stjórnarandstaðan eftir fundinn um að ríkisstjórnin hafi engar lausnir fram að færa ???

Halló, þess vegna var boðað til fundarins ??? Því miður virðast alltof margir alþingismenn óhæfir til annars á þessum erfiðu tímum en að rífa kjaft, kenna öðrum um og vera í einhverjum valdaleik.

Nú á þjóðin við vanda að stríða, raunverulegan vanda og við megum ekki við að ráðafólk leiki sér og eyði síðastu vikum af líftíma heilbrigðrar þjóðar í að reyna að skapa sjálfum sér meiri völd.

Það einfaldlega gengur ekki lengur að í þessu landi verði engin áhætta fyrir fjármagnseigendur. Þannig virka frjáls hagkerfi ekki ?  Verðtrygging, ábyrgðarmenn og allar þessar hækjur og hjálpardekk verða að víkja. það býr enginn til lengdar í landi þar sem alþingismönnum finnst sjálfsagt að hann borgi bílinn sinn þrisvar og fasteignina jafnvel oftar.  Myrkrir vetur, kuldi, langur vinnutími og lág laun hjálpa ekki heldur. Hér verður að taka föstum alvörutökum á málum því að 2007 er liðið.


mbl.is Boða formenn flokka á fund í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kommúnismi eða Kapítalismi ?

Kapítalisminn sem er drifkraftur einkaframtaksins virkar ekki ef fjármagnseigndur (lánadrottnar) fá, hækjur, axlabönd, hjálpardekk, öryggisbelti og ríkisábyrgð. Það verða að vera smá hömlur. Afnemum því allt þetta auka öryggi ? Þegar þú hættir fé þínu til þess að græða meira þá annað hvort græðir þú eða tapar. Það á ekki að vera ríkisábyrgð (þjóðin veðsett) fyrir því að þú græðir ? (Samanber neyðarlögin og verðtrygging samkv. vísitölu neysluverðs).

Forsætisráðherra hefur gert sér grein fyrir að aðgerða er þörf ?

Það var engu líkara en að forsætisráðherra kæmi af fjöllum í beinni útsendingu í tíufréttunum í kvöld þegar hún var innt um viðbrögð við hörðum mótmælum átta þúsund manns meðan á stefnuræðu hennar stóð. Hún sagðist hissa á svip hafa fengið alvarleg skilaboð frá fólkinu um að eitthvað yrði að gera varðandi skuldavanda heimilanna. Í hvaða landi hefur hún búið og til hvers hélt hún að hún hefði verið kosin á þing ?

Frábær landkynning ?

Það er fín leið til að laða að erlenda fjárfesta að samþykkja LEIGU Magma á auðlindinni, skoða allt í nefndum, ráðum og ríkisstjórn, ganga frá samningum og hætta svo við allt saman EFTIRÁ !

YAY !

 

Þeir borga allavega leigu, annað en sumir.


Skattatillögur AGS.

Ég held að það séu takmörk fyrir hve hratt er hægt að láta þjóðina borga klúðrið upp og að ekki megi ganga lengra í skattpíningunni en þegar hefur verið gert.

Slakið bara á stjórnvöld og leitið peninganna þar sem þeir eru faldir í holu banksteranna ?

Gengur ekki "björgunin" nógu hratt ? Það er enginn gróði að því að kyrkja húsdýr/þjóð sem gefa hámarksarð eða að pína þau svo að þau fari að bíta frá sér eða flýja.
mbl.is Útilokar ekki skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíð Íslands ?

Er misskilningur að treysta íslendingum betur fyrir auðlindunum ? Hvernig eru íslenskir kvótaeigendur að standa sig ? Hvað verður af fiskinum ? Er utankvótafiski bara hent í hafið ? Af hverju kemur alltaf minni afli á land ár eftir ár þrátt fyrir kvóta á fiskveiðar ?
      Voru ekki útlendingar að vinna flest byggingavinnustörfin í uppsveiflunni þegar brjálað var að gera og héldu samtímis niðri launaskriði sem annars hefði orðið hjá íslenskum iðnaðarmönnum ? Hefðum við ekki átt að taka aðeins meiri tíma í að byggja Kárahnjúkavirkun með innlendu vinnuafli ? Fá skatttekjur af því ? Ég er ekki að lýsa yfir skoðun, ég er bara að spyrja??? Hver er þín skoðun ? Íslendingur ?

Held samt að það eina jákvæða sem íslendingar almennt sjá við Evrópusambandið sé að losna við íslenska klíkuráðamenn og óheiðarleikakónga, einmitt það að koma valdinu úr landi frá gjörspilltum stjórnmálamönnum, banksterum og föðurlandssvikurum og  jú líka að fá evruna í stað matadorgjaldmiðilsins okkar sem nefnd er króna ? Hvað finnst þér ?

 

Hvernig væri að stokka þetta aðeins upp ? Staldra við og hugsa málið ? Eigum við bara að afhenda auðlindirnar ? Væri ekki ráð að endurheimta þær bara ? Fiskinn, jarðhitann og allt okkar ?


Jóhanna, lemdu borðið !

Íslensk stjórnvöld virðast vera að reyna að sigla milli skers og báru með gengistryggðu lánin eins og flest mál en átta sig ekki á að með aðgerðaleysi sínu strandar allt á þeim.

Hvað þýða þessir seðlabankavextir sem talað er um í tilmælum FME ? Hvað erum við að tala um í prósentum ? 8.25% eins og óverðtryggðir Seðlabankavextir eru núna ? Eða eitthvað annað ? Ef það á að klára málið og ná sátt þá þarf að koma hreint og klárt tilboð sem myndi standa.

Þó að lögin segi fyrir um að samningsvextirnir skuli standa og gaman væri að njóta einusinni vafans þá finndist mér ásættanlegt að Jóhanna myndi öskra og berja í borðið og segja nei, 8.25% skulu það vera !

Væri það ekki ásættanleg lending fyrir alla ?

Ég vill ekki að það sé svínað á mér og ég látinn borga bílinn minn þrisvar en ég vill heldur ekki svína á öðrum og borga aðeins 4% vexti án allrar áhættu ?

 Það verður samt aldrei nein sátt um einhverja breytilega vexti og aldrei einhver 14.6% eins og maður hefur sumsstaðar heyrt ?

Þegar ég skrifaði undir gengistryggða lánið þá gerði ég það í góðri trú um styrkingu krónunnar enda vissi ég ekki að bankastofnanir myndu ítrekað taka stöðu gegn eigin gjaldmiðli og ég hafði heldur engar innherjaupplýsingar til að byggja á. Einnig vegna þess að ég gat ekki hugsað mér að skrifa undir 16.75% vexti á óverðtryggðu ísl. láni og þaðan af síður verðtryggt lán.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband